05.06.2008 09:15:48 / myrka

Gömlu myndirnar!

Mig langar til að þakka Danna fyrir allar skönnuðu myndirnar. Frábært framtak! :d
Ég hef séð sumar þeirra áður en margar er ég að sjá í fyrsta skipti, og fyrir vikið þekki ég ekki nærri allt fólkið á þeim myndum. Ég bíð því spenntur eftir að systkinin á og frá Myrká segi okkur tölvufróðari hver þetta eru svo að hægt sé að setja öll nöfn við þessar gömlu myndir. Annars er gaman að reyna að giska á nöfn fyrirsætanna, sérstaklega á barnamyndunum.
Kveðjur, Ómar Bryndísarson Ármannsdóttur


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 22:54:25 / myrka

Myndir

Kæru ættingjar ef þið eigið myndir frá síðasta ættarmóti þá endilega setjið þær inná blogsíðuna. Athugið að hámarksstærð mynda er 588x441 pixlar. Ef þið lendið í vandræðum með að setja inn myndir þá getið þið sent mér þær í tölvupósti 6981437@internet.is og ég skal setja þær inná síðuna.

 

Kveðja Daníel Jónasson


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 23:04:23 / myrka

Loksins

Takk fyrir frábæra helgi!

Loksins kom ég mér í það að setja inn nokkrar myndir.

Ég er að vinna aðeins í myndunum sem ég skannaði inn og kem ég til með að setja þær á netið jafnóðum og þær eru tilbúnar.

ATH að myndirnar á netinu eru minkaðar ef einhvern langar í stærri mynd-myndir þá er velkomið að hafa samband 6981437@nternet.is

Kveðja: Daníel Jónasson


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 23:55:01 / myrka

Kæru ættingjar og aðrir fjölskyldumeðlimir

Sæl öll!

Á þessari síðu væri tilvalið að setja inn myndir og annað eftir ættarmótið svo aðrir geti skoðað. Eins verður þetta miklu þægilegri miðill fyrir næsta ættarmót. Svo má auðvitað skrifa línur þegar hver og einn vill svo við getum fylgst betur með og kynnst betur hverju öðru. 

Kveðja Rannveig Elíasdóttir 

mailto:nanny82@simnet.is


» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 4030